Rannsóknastofa í læknisfræðilegri myndgreiningu

Lotta María Ellingsen, Ph.D.

Dósent og deildarforseti Rafmagns- og tölvuverkfræðideildar

Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

 Email: Lotta@hi.is   
Ferilskrá

Rannsóknagátt

Google Scholar

Image
Lotta María Ellingsen

Rannsóknir

Ég hef lengi haft áhuga á rannsóknum og þróun verkfræðilausna á verkefnum sem tengjast læknisfræði. Sérþekking mín er á sviði myndflokkunar (e. image segmentation) og myndmátunar (e. image registration) og hef ég þróað aðferðir fyrir bæði heilamyndir og myndir af mjaðmagrind.

Rannsóknir mínar í dag snúast um þróun sjálfvirkra reikniaðferða við myndgreiningu á segulómmyndum af heila til þess að leita kerfisbundið að breytileika í byggingu heilans með það að markmiði að:

  1. finna sjúkdómseinkennandi breytileika í heila til að stuðla að einstaklingsmiðaðri meðferð ákveðinna sjúkdóma; og
  2. brúa læknisfræðilega myndgreiningu og erfðafræði með kerfisbundinni greiningu á vægum breytileika í heila barna með bæði þekkta og óþekkta erfðasjúkdóma.

Undanfarið ár hefur meginrannsóknarverkefni mitt snúist um að þróa myndgreiningaraðferð til greiningar á sjúkdómi, sem kallast fullorðinsvatnshöfuð (e. normal pressure hydrocephalus). 

Menntun

Nýdoktor, Johns Hopkins University, 2009-2010
Ph.D. í rafmagns- og tölvuverkfræði, Johns Hopkins University, 2008
MSE í rafmagns- og tölvuverkfræði, Johns Hopkins University, 2004
BS í rafmagns- og tölvuverkfræði, Háskóli Íslands, 2001

Hafðu samband

Rafmagns- og tölvuverkfræðdeild Háskóla Íslands
VRII-357
Hjarðarhaga 6
107 Reykjavík
Sími: +354 525-4670